Beint í leiðarkerfi vefsins.
Hæstiréttur mun taka fyrir mál sem snýr að vaxtaþætti bílalána og kaupleigusamninga í erlendri mynt mánudaginn 6. september nk. Af þeirri ástæðu hefur SP-Fjármögnun ákveðið að senda ekki út greiðsluseðla vegna gjalddaga á fyrrgreindum lánum í september. SP-Fjármögnun hóf á miðju sumri undirbúing á endurreikningum fyrrgreindra lána samkvæmt tilmælum Seðlabanka Íslands og Fjármáleftirlitsins. Ljóst er að niðurstaða Hæstaréttar mun hafa áhrif á endurútreikningana og því telur SP-Fjármögnun rétt að bíða eftir dómsniðurstöðu í málinu áður en lengra er haldið.